
Shared earth
Draumafangari - Dökkbrúnn 9cm
Hefðbundið verð
1.290 kr
Fallegur draumafangari með svörtum kúlum og náttúrulega lituðum fjöðrum.
Þvermál: 9cm
Lengd: Ca 35cm.
Uppruna draumafangara má rekja til frumbyggja Ameríku sem trúðu því að andrúmsloft næturinnar væri fullt af draumum, góðum og slæmum. Draumafangarinn var hengdur á stað þar sem morgunsólin gat skinið á hann. Þar dró draumafangarinn til sín alla drauma og hugsanir þess sem svaf. Góðu draumarnir fóru í gegnum vefinn og runnu niður fjaðrirnar til dreymandans en slæmu draumarnir sátu fastir í vefnum þar sem morgunsólin eyddi þeim með geislum sínum.